|
Nýtt námskeið - Styrking vonar og lífskrafts |
|
Fyrir fólk sem hefur greinst oftar en einu sinni eða er með langvinnt krabbamein.
Hefst: 10 febrúar – föstudagar kl. 13:00-15:00 – 8 skipti.
Umsjón: Rannveig Björk Gylfadóttir hjúkrunarfræðingur, (MS í krabbameinshjúkrun og diploma í hugrænni atferlismeðferð.
Gestafyrirlesarar: Iðjuþjálfi og næringarráðgjafi.
Markmið: Að þátttakendur auki jafnvægi í daglegu lífi og með því starfshæfni, vellíðan og von í gegnum fræðslu, umræður og eflandi verkefni. Þarna gefst tækifæri til að hitta aðra í sömu sporum, fá stuðning og fræðslu við að þekkja eigin tilfinningar, hugsanir, huga að sjálfsmyndinni, næringu og slökun.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Góðar fréttir úr Ljósinu... |
|
Húsið er okkar !
Þann 19. október sl. festi stjórn Ljóssins kaup á húsnæðinu
á Langholtsvegi 43. Þar með er framtíðarhúsnæði undir starfsemina tryggt.
Fyrir 6 árum var stofnaður húsnæðis- og minningarsjóður um
Eyjólf Sigurðsson sem lést í júlí 2006.
Það má með sanni segja að íslenska þjóðin hafi fært okkur
eignina í gegnum ýmis söfnunarverkefni og má þar nefna:
Minningastyrkir
Landssöfnun í síma 2009
Ljósadagar með Steina göngugarpi
Átakið á allra vörum 2010
Lions- Kiwanis og Oddfellowklúbbar.
Um leið og við óskum öllum Ljósberum og velunnurum Ljóssins
til hamingju sendum við þakkarkveðjur til allra sem hafa stutt okkur.
Lifi Ljósið
|
|
|
Hár og vellíðan er ný hársnyrtistofa sem Sirrý ljósberi var að opna á dögunum.
HÁR & VELLÍÐAN mun leggja áherslu á að þjónusta viðskiptavini sem vegna veikinda eða að öðrum
ástæðum þurfa á hárkollum að halda. Lagt verður upp úr að hafa gott úrval og að það verði það nýjasta nýtt hverju sinni og persónulegri þjónustu þannig að viðskiptavini líði vel og fái jákvæða upplifun af heimsókn sinni til okkar.
HÁR & VELLÍÐAN býður upp á almenna hársnyrtiþjónustu og leggur áherslu á náttúrulegar meðferðir fyrir hárið eins og hárspameðferðir, persónulega ráðgjöf um hárið og umhirðu þess.
HÁR & VELLÍÐAN mun einnig leigja hárkollur til viðskiptavina
sinna. Sniðugt ef viðkomandi langar að nota hárkollu við
sérstök tækifæri og hefur ekki fjárfest í hárkollu.
Sirrý leggur áherslu á
notalegt og rólegt umhverfi með persónulega þjónustu þannig að
viðskiptavininum líði sem best að koma á stofuna.
Allir ljósberar fá 15% afslátt af hársnyrtiþjónustu og 10 %afslátt af vörum
|
|
|
Vekjum athygli á nýjum heimasíðum |
|
Markmið verkefnisins er tvíþætt:
Að bjóða krabbameinsgreindum einstaklingum og aðstandendum ókeypis
kynlífsráðgjöf og sérhæfða ráðgjafaþjónustu klínísks kynfræðings
Að fræða og þjálfa þá sem koma að lækningu og hjúkrun
krabbameinsgreindra þannig að umræðan um kynlíf/kynheilbrigði verði
sjálfsagður þáttur í meðferð sjúklinga.
Jóna Ingibjörg Jónsdóttir, klínískur kynfræðingur er sérlegur starfsmaður verkefnisins. Jóna Ingibjörg hefur margra ára reynslu af kennslu, ráðgjöf og rannsóknum innan kynfræða, enda afar vel menntuð í þessum efnum
Smellið á myndirnar til að fara inná síðurnar
Heild er ráðgjafa- og sálgæslusetur, sem sérhæfir sig í vinnu með
einstaklingum sem eru á krossgötum eða eru að fara í gegnum breytingar í
lífi sínu og þarfnast ráðgjafar og leiðsagnar.
Áhersla er á heildræna
nálgun í ráðgjöf, sálgæslu og stuðningi.
Stofnendur eru Guðrún
Kristín Þórsdóttir og Kristín Sigríður Garðarsdóttir. Báðar eru með
mikla reynslu og þekkingu af ráðgjöf, sálgæslu og leiðsögn.
|
|
Nú fer
vetrarstarf Ungliðahóps SKB, Krafts og Ljóssins af stað á nýjan leik.
Hópurinn er fyrir fólk á aldrinum 18-30 ára sem hefur annað hvort
greinst með krabbamein einhvern tímann á lífsleiðinni eða er aðstandandi
einhvers sem hefur greinst. Hópurinn mun hittast annan hvorn fimmtudag í
vetur og nú er komið að fyrsta fundi. Hann verður fimmtudaginn 8.
september klukkan 19:00 í Ljósinu, Langholtsvegi 43. Þar verður dagskrá
vetrarins kynnt og farið verður yfir haustferð hópsins sem er á næsta
leiti. Boðið verður upp á léttar veitingar og eitthvað sprell. Nýjir sem
gamlir félagar eru boðnir velkomnir en markmið hópsins er að hlúa að
sekmmtilegu og fræðandi starfi fyrir ungt fólk og gefa því tækifæri til
að hittast og ræða málin.
Næsti fundur er fimmtudaginn 8. september klukkan 19:00 í Ljósinu, Langholtsvegi 43.
Endilega látið berast ef þið þekkið einhvern á þessum aldri sem hefði gaman af því að koma.
|
|
|
Unga fólkið og líkamsrækt |
Líkamsrækt í Hreyfingu fyrir ungt fólk
ca 18-39 ára.
Haukur sjúkraþjálfari mun stýra hópum í tækjasalnum fyrri ungt fólk sem hefur fengið krabbamein og vill byggja sig upp undir handleiðslu fagaðila. Hóparnir verða í Hreyfingu í Glæsibæ..á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 13:30
Fyrsti tíminn er þriðjudaginn 6 sept.
Skráning hjá Ljósinu í síma 5613770
|
|
|
Nýtt! Yoga - eftir hádegi |
|
Ertu að vinna, eða áttu erfitt með að vakna á morgnana. Viltu prófa að vera í jóga og góðum teyjuæfingum eftir hádegi á þriðjudögum kl.13:00
Jóga með Birgittu Guðmundsdóttur.
Jóga og teyjur er góð leið til að auka vellíðan og almennan liðleika.
Tímarnir hefjast þriðjudaginn 6. September
Verð: 400 kr. tíminn
Láttu þér líða vel
Vinsamlegast skráið ykkur í síma 5613770 svo að við vitum hver áhuginn er.
|
|
|
Nýtt námskeið í samvinnu við Lótushús |
|
Viltu stjórna eigin hugsunum og læra að hugleiða.
Tími: Mánudagar kl: 10:00-11:30, 4 skipti.
Hefst : 5 september
Jákvæð hugsun: „Þú ert það sem þú hugsar!"
Hugsanir mínar um eigið sjálf og aðra hafa bein áhrif á sambönd mín, bæði sambandið við sjálfan mig og aðra. Traust, kærleikur, virðing, skilningur og góð samskipti einkenna öll góð sambönd. Er ég minn eigin vinur og félagi?
Hugleiðsla: Viltu læra að iðka hugleiðslu?
Hugleiðsla hefur í gegnum aldirnar verið ein einfaldasta og áhrifaríkasta leiðin til að öðlast jákvæðara og kyrrara hugarástand. Hugleiðslan hjálpar okkur að læra að ríkja yfir eigin huga, öðlast sanna sjálfsvirðingu og virkja þá góðu eiginleika sem innra með okkur búa.
Markmið námskeiðisins:
Markmið námskeiðisins er að veita aukinn skilning á eðli hugsanana og kyrra hugann með hugleiðslu. Þú munt læra einfaldar aðferðir til að tileinka þér jákvæðara og uppbyggilegra viðhorf heima fyrir, í vinnunni og í samskiptum þínum við annað fólk.
Skráning í Ljósinu í síma 561-3770, Verð kr. 2000,-
|
|
|
Nú er hægt að kaupa bolla með merki Ljóssins, á bollanum stendur:
Ég styrki Ljósið.
Bollinn kostar 2000 kr
Öll sala af bollanum fer til styktar Ljósinu.
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 8 - 17 af 33 |