| Fræðslufundir fyrir karlmenn |
|
|
|
|
Nýtt námskeið hefst 6.febrúar - skráning er hafin í síma 5613770
Fræðslufundir fyrir karlmenn Mánudagar, umsjónarmaður fyrir Ljósið, Matti Ósvald Fundirnir verða einu sinni í viku á mánudögum kl. 17:30 í 10 vikur, Fræðslufundirnir hafa verið á dagskrá áður og gáfust vel. Markmiðið er að karlmenn fái uppbyggjandi fræðslu, og hafi gagn og gaman af að hitta aðra í sömu aðstæðum. Farið verður í gegnum það breytingarferli sem einstklingar ganga í gegnum við það að veikjast. Það verða fyrirlestrar um mikilvægi þess að byggja sig upp andlega og líkamlega og mikilvægi þess að setja sér markmið . Fundarstjóri er eins og á fyrra námskeiðinu, Matti Ósvald heilsufræðingur. Þeir fagaðilar sem verða með fyrirlestur eru: Helgi Sigurðsson, krabbameinssérfræðingur og prófessor, Högni Óskarsson geðlæknir og markþjálfi,Snorri Ingimarsson geðlæknir og krabbameinssérfræðingur, Daniel Reynisson í Krafti, Hannes Bjarni Hannesson sjúkraþjálfari auk jógakennara. Þá verður slegið á létta strengi og eldað með Ingvari sem var áður á Salatbarnum. Kaffi og létt meðlæti. 10 vikna fræðslunámskeið kostar kr. 5000,-.
Dagskrá fundanna - Ath breyting á röðun fyrirlesara
13.feb Lífið og tilveran Matti Osvald / Heilsufræðingur
20.feb Líkamleg uppbygging / Hannes Bjarni sjúkraþjálfari
27. feb Reynslusaga úr eigin lífi – fjölskyldan / Daníel í Krafti
05.mars Breytingarferli mannsins við veikindi / Berglind iðjuþjálfi 12. mars Karlmennskan / Snorri geð og krabbam.læknir 19.mars Ímyndir krabbameina / Helgi krabbameinslæknir 26.mars Kraftbirtingarhljómurinn / Högni geðlæknir-markþjálfi / 02. apríl Streita og slökun - Birgitta Guðmundsdóttir jógakennari 16. apríl Eldað saman og snjallar gamansögur / Ingvar kokkur 23. apríl Samantekt og lok námskeiðs / Matti Osvald
|
Þú getur lagt inn frjáls framlög á styrktarreikning Ljóssins
Nú er hægt að kaupa falleg minningarkort í Ljósinu. Sigrún Lára Shanko, listakona og félagi í Ljósinu hannaði og málaði myndina sem er keltneskur kross.
Erum með til sölu möndlupoka, einnig notað til að spíra í og til að sigta safa
Pokinn kostar 1000 kr
Smelltu á myndina til að fá uppskrift af grænum djús frá Sollu á Gló
Ljósið er með til sölu málverk eftir tvo listamenn, þá Árna Rúnar og Garðar Jökulsson. Myndirnar hanga uppí Ljósinu til sýnis, einnig er hægt að skoða þær HÉR

Undanfarin ár hefur Ljósið
verið að efla líkamlega
endurhæfingu með því t.d. að vera í samvinnu við Hreyfingu,
Álfheimum. Sjá nánar hér
![]()
Við höfum nú gert samning við Skeljung þar sem þeir gefa ykkur 3 krónur í afslátt af hverjum lítra en Ljósið fær 2 krónur til að safna fyrir varanlegu húsnæði. Lyklarnir eru hérna hjá okkur í Ljósinu svo endilega komið og sækið ykkur lykla. Má einnig taka fyrir alla fjölskylduna og vini. Því fleiri lyklar sem fara út, því meiri notkun og við söfnum fljótt og vel fyrir húsinu okkar og allir græða.
Ljósið er 5 ára þetta árið og því tilvalið að stuðla að framtíðaröryggi svo það komi til með að lifa a.m.k næstu 100 árin. Endilega sendið áfram á þá sem þið þekkið og vilja styrkja gott málefni.
En ath það þarf að sækja lyklana hingað því þeir eru forritaðir fyrir Ljósið. Þeir eru ekki tengdir debet eða kreditkorti heldur notaðir áður en kortið er sett í.
Starfsemi
Námskeið / Hópar
Fræslufundir fyrir karlmenn