| Ungliðahópur Ljóssins,Krafts og SKB |
|
|
|
Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna (SKB), Ljósið endurhæfingar og stuðningsmiðstöð og Kraftur hafa tekið höndum saman um að halda úti metnaðarfullri dagskrá fyrir ungliða á aldrinum 18 til 29 ára frá og með næsta hausti.
Vel heppnaður kynningarfundur var haldinn sl. miðvikudag þar sem um 20 ungmenni mættu. Félögin kynntu starfsemi sína og fengu um leið hugmyndir frá ungliðunum í púkkið fyrir komandi starfsár.
Í ungliðastarfi komandi starfsárs (haust 2010-vors 2011) verður miðað við að hittast á tveggja vikna fresti, eftir hefðbundinn vinnutíma og í upphafi starfsársins verður boðið upp á óvissuferð yfir helgi til að hrista hópinn vel saman. |
Þú getur lagt inn frjáls framlög á styrktarreikning Ljóssins
Nú er hægt að kaupa falleg minningarkort í Ljósinu. Sigrún Lára Shanko, listakona og félagi í Ljósinu hannaði og málaði myndina sem er keltneskur kross.
Erum með til sölu möndlupoka, einnig notað til að spíra í og til að sigta safa
Pokinn kostar 1000 kr
Smelltu á myndina til að fá uppskrift af grænum djús frá Sollu á Gló
Bleik bjartsýni er bútasaumsteppi sem yfir 40 konur saumuðu og gáfu Ljósinu ásamt því gáfu þær kort með mynd af teppinu sem hægt er að kaupa í Ljósinu.
Kortið kostar 350 kr
Ljósið er með til sölu málverk eftir tvo listamenn, þá Árna Rúnar og Garðar Jökulsson. Myndirnar hanga uppí Ljósinu til sýnis, einnig er hægt að skoða þær HÉR

Undanfarin ár hefur Ljósið
verið að efla líkamlega
endurhæfingu með því t.d. að vera í samvinnu við Hreyfingu,
Álfheimum. Sjá nánar hér
![]()
Við höfum nú gert samning við Skeljung þar sem þeir gefa ykkur 3 krónur í afslátt af hverjum lítra en Ljósið fær 2 krónur til að safna fyrir varanlegu húsnæði. Lyklarnir eru hérna hjá okkur í Ljósinu svo endilega komið og sækið ykkur lykla. Má einnig taka fyrir alla fjölskylduna og vini. Því fleiri lyklar sem fara út, því meiri notkun og við söfnum fljótt og vel fyrir húsinu okkar og allir græða.
Ljósið er 5 ára þetta árið og því tilvalið að stuðla að framtíðaröryggi svo það komi til með að lifa a.m.k næstu 100 árin. Endilega sendið áfram á þá sem þið þekkið og vilja styrkja gott málefni.
En ath það þarf að sækja lyklana hingað því þeir eru forritaðir fyrir Ljósið. Þeir eru ekki tengdir debet eða kreditkorti heldur notaðir áður en kortið er sett í.