Ljósið

Gaman saman PDF Prenta Rafpóstur

 

gaman_saman.jpg  
 

Markmiðið með hópnum er að fólk á svipuðum aldri hittist, spjalli, fari útúr húsi og hafi bara yfirleitt gaman af því að vera til og vera í góðum félagsskap.  Við höfum reiknað með fólki sem er undir 50 ára.

Það var ákveðið á fyrsta fundi að vera stundum í Ljósinu á Lanholtsveginum, en stundum útúr húsi og verða þá kannski smá menningarleg og skoða söfn og kaffihús 

Við hittumst alla mánudaga kl. 11:00-12:30 - förum þá saman í hádegismat..

Stjórnandi fundanna er Erna Magnúsdóttir yfiriðjuþjálfi

Tilvalið fyrir þá sem geta að koma fyrst í Jógatíma kl. 10:00

 

 

Dagskrá

  Dagskráin er þannig samansett að stundum eru fyrirlestrar, stundum farið útúr húsi, og stundum bara spjallað um daginn og veginn.. Þetta er léttur og skemmtilegur hópur og engar kvaðir fyrir þá sem vilja vera með..

 
Mánudagur 6. febFörum saman á veitingastaðinn Happ, sem er rómaður fyrir frábæran og hollan mat...

 

Mánudagur 13.feb

Listin að skapa sjálfan sig. Ljósið, myndin og orðið.

Hlín Agnarsdóttir, rithöfundur og leikstjóri ætlar að koma  og tala um sjálfstjáningu og skapandi hugsun sem mikilvægan þátt í að skapa sjálfan sig. Í fyrra skiptið segir hún frá minni  reynslu af listsköpun í leikhúsi og skrifum og setja einfalt verkefni í gang.  Ef þið eigið stafrænar myndavélar eða geta tekið myndir á síma væri gott að taka það með

 

Mánudagur 20. feb.

Hlín heldur áfram að leika sér með okkur...

Um Hlín:  Hún er fædd 1953 og stundaði nám í leiklistarfræðum við háskólana í Uppsölum og Stokkhólmi og síðar leikstjórn við Drama Studio í London. Þá hefur hún einnig lokið M.A.prófi í Almennri bókmenntafræði. Hún á að baki fjölda uppsetninga í öllum atvinnuleikhúsum landsins. Hún hefur skrifað fjölmörg leikrit, skáldsögur og sjálfsævisögulega bók sem m.a. var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Þá hefur hún kennt við ýmsa skóla m.a. Kvikmyndaskóla Íslands, Endurmenntun Háskóla Íslands og í Ritlist við Háskóla Íslands.  

 

Mánudagur 27.febrúar
Spenna og slökun                                                         

Til eru margar mismunandi leiðir til að vinna með spennu og kvíða og til að ná slökun.  Það mikilvægasta fyrir hvern einstakling er að finna aðferð sem hentar honum best. Við ræðum þessi mál og förum í nærandi slökun.

 

Hugmyndir í mars:   Solla himneska,  Fræðsla um samskipti kynja í veikindum, kynlíf og fl.

Magadans, út að borða og fleira.

 

 


                      
 
 

Viltu styrkja Ljósið

Þú getur lagt inn frjáls framlög á styrktarreikning Ljóssins

reikn.no 0130-26-410420
kt: 590406-0740

Minningarkort

minning-kross.jpgNú er hægt að kaupa falleg minningarkort í Ljósinu.  Sigrún Lára Shanko, listakona og félagi í Ljósinu hannaði og málaði myndina sem er keltneskur kross.

Möndlu / Spírupokar

s_grni.jpg 

 

 

 

 

 

Erum með til sölu möndlupoka, einnig notað til að spíra í og til að sigta safa

Pokinn kostar 1000 kr

Smelltu á myndina til að fá uppskrift af grænum djús frá Sollu á Gló

Bleik Bjartsýni

bleik_bjartsyni_litil.jpgBleik bjartsýni er bútasaumsteppi sem yfir 40 konur saumuðu og gáfu Ljósinu ásamt því gáfu þær kort með mynd af teppinu sem hægt er að kaupa í Ljósinu. 

Kortið kostar 350 kr

Málverka hornið

flettur_2011.jpgLjósið er með til sölu málverk eftir tvo listamenn, þá Árna Rúnar og Garðar Jökulsson. Myndirnar hanga uppí Ljósinu til sýnis, einnig er hægt að skoða þær HÉR

8.jpg

Um Ljósið

Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein / blóðsjúkdóma og aðstandendur þeirra. Markmið Ljóssins er að efla lífsgæðin með því að styrkja andlegan, félagslegan og líkamlegan þrótt og draga þannig úr hliðarverkunum sem sjúkdómurinn getur haft í för með sér.
Lesa meira

Hreyfing styrkir Ljósið

Undanfarin ár hefur Ljósið
verið að efla líkamlega
endurhæfingu með því t.d. að vera í samvinnu við Hreyfingu,
Álfheimum.     Sjá nánar hér

hreyfing_logo.png

     

Viðtal

Útvarpviðtöl við Ernu og Matta Ósvald heilsuráðgjafa á Rás 1 og Rás 2  vegna fræðslufunda fyrir karlmenn í Ljósinu. Smelltu hér til að hlusta

Viltu lækka eldsneytisverðið?

orkan-lykill-litil.pngskeljungur-logo-litil.gif

 

 Við höfum nú gert samning við Skeljung þar sem þeir gefa ykkur 3 krónur í afslátt af hverjum lítra en Ljósið fær 2 krónur til að safna fyrir varanlegu húsnæði.  Lyklarnir eru hérna hjá okkur í Ljósinu svo endilega komið og sækið ykkur lykla.  Má einnig taka fyrir alla fjölskylduna og vini.  Því fleiri lyklar sem fara út, því meiri notkun og við söfnum fljótt og vel fyrir húsinu okkar og allir græða.

Ljósið er 5 ára þetta árið og því tilvalið að stuðla að framtíðaröryggi svo það komi til með að lifa a.m.k næstu 100 árin. Endilega sendið áfram á þá sem þið þekkið og vilja styrkja gott málefni. 

En ath það þarf að sækja lyklana hingað því þeir eru forritaðir fyrir Ljósið. Þeir eru ekki tengdir debet eða kreditkorti heldur notaðir áður en kortið er sett í.

Vertu með okkur á Facebook

Þú ert hér:Forsíða arrow Starfsemi arrow Námskeið / Hópar arrow Gaman saman
Ljósið | Langholtsvegi 43 | 104 Reykjavík | Sími 561-3770