Ljósið

Viðtöl við iðjuþjálfa og sjúkraþjálfara PDF Prenta Rafpóstur

Viðtöl við iðþjuþjálfa: Við upphaf endurhæfingarinnar býðst öllum að fara í fyrsta viðtal hjá iðjuþálfa. Iðjuþjálfinn hjálpar þér við að raða saman dagskrá sem hentar þér í endurhæfingarferlinu. Auk þess er rætt um allt er viðkemur daglegri iðju, þær breytingar sem verða við veikindi, hlutverk, fjölskylduhagi, tilfinningalíf og margt fleira. Allt er þetta gert til að þú getir sett þér markmið með endurhæfingunni, náir að vinna með þínar sterku hliðar og þannig færðu tækifæri til að byggja upp andlegt, félagslegt og líkamlegt þrek. Fólki býðst að vera í áframhaldandi viðtölum hjá iðjuþjálfa til að fara dýpra í það sem viðkemur daglegri iðju og aðstoð við að byggja þig upp til að komast aftur til vinnu. í ferlinu eru oft notuð stöðluð matstæki sem hjálpa þér við að setja orð á hlutina. Iðjuþjálfinn fylgir þér eftir eins lengi og þörf þykir.

Hægt er að panta tíma í viðtal við iðjuþjálfa  í síma 5613770

Iðjuþjálfar í Ljósinu eru:   Erna Magnúsdóttir forstöðukona   Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

                                        Berglind Kristinsdóttir   Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

                                        Anna Sigríður Jónsdóttir   Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

 

Viðtöl við sjúkraþjálfara: Það er hægt að panta viðtalstíma hjá sjúkraþjálfara Ljóssins. Markmiðið með viðtölunum er að veita persónulega ráðgjöf varðandi hreyfingu sem hentar hverju sinni. Í tímanum gerir sjúkraþjálfarinn einnig nauðsynlegar mælingar eins og þolpróf, mælingu á blóðþrýstingi, púlsi og fitumælingu. Sjúkraþjálfarinn heldur utan um þjálfunina og fylgir þér eftir eins lengi og þörf þykir.

Hægt er að panta tíma í viðtal hjá sjúkraþjálfara í síma 5613770

Sjúkraþjálfari er Hannes Bjarni Hannesson


 

Viðtölin eru eingöngu ætluð krabbameinsgreindum og aðstandendum þeirra

 

 
 

Viltu styrkja Ljósið

Þú getur lagt inn frjáls framlög á styrktarreikning Ljóssins

reikn.no 0130-26-410420
kt: 590406-0740
Langholtsvegur 43 - 104 Reykjavík

Minningarkort

minning-kross.jpgNú er hægt að kaupa falleg minningarkort í Ljósinu.  Sigrún Lára Shanko, listakona og félagi í Ljósinu hannaði og málaði myndina sem er keltneskur kross.

Möndlu / Spírupokar

s_grni.jpg 

 

 

 

 

 

Erum með til sölu möndlupoka, einnig notað til að spíra í og til að sigta safa

Pokinn kostar 1000 kr

Smelltu á myndina til að fá uppskrift af grænum djús frá Sollu á Gló

Málverka hornið

flettur_2011.jpgLjósið er með til sölu málverk eftir tvo listamenn, þá Árna Rúnar og Garðar Jökulsson. Myndirnar hanga uppí Ljósinu til sýnis, einnig er hægt að skoða þær HÉR

8.jpg

Um Ljósið

Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein / blóðsjúkdóma og aðstandendur þeirra. Markmið Ljóssins er að efla lífsgæðin með því að styrkja andlegan, félagslegan og líkamlegan þrótt og draga þannig úr hliðarverkunum sem sjúkdómurinn getur haft í för með sér.
Lesa meira

Hreyfing styrkir Ljósið

Undanfarin ár hefur Ljósið
verið að efla líkamlega
endurhæfingu með því t.d. að vera í samvinnu við Hreyfingu,
Álfheimum.     Sjá nánar hér

hreyfing_logo.png

     

Viðtal

Útvarpviðtöl við Ernu og Matta Ósvald heilsuráðgjafa á Rás 1 og Rás 2  vegna fræðslufunda fyrir karlmenn í Ljósinu. Smelltu hér til að hlusta

Viltu lækka eldsneytisverðið?

orkan-lykill-litil.pngskeljungur-logo-litil.gif

 

 Við höfum nú gert samning við Skeljung þar sem þeir gefa ykkur 3 krónur í afslátt af hverjum lítra en Ljósið fær 2 krónur til að safna fyrir varanlegu húsnæði.  Lyklarnir eru hérna hjá okkur í Ljósinu svo endilega komið og sækið ykkur lykla.  Má einnig taka fyrir alla fjölskylduna og vini.  Því fleiri lyklar sem fara út, því meiri notkun og við söfnum fljótt og vel fyrir húsinu okkar og allir græða.

Ljósið er 5 ára þetta árið og því tilvalið að stuðla að framtíðaröryggi svo það komi til með að lifa a.m.k næstu 100 árin. Endilega sendið áfram á þá sem þið þekkið og vilja styrkja gott málefni. 

En ath það þarf að sækja lyklana hingað því þeir eru forritaðir fyrir Ljósið. Þeir eru ekki tengdir debet eða kreditkorti heldur notaðir áður en kortið er sett í.

Vertu með okkur á Facebook

Þú ert hér:Forsíða arrow Starfsemi arrow Viðtöl við iðjuþjálfa og sjúkraþjálfa
Ljósið | Langholtsvegi 43 | 104 Reykjavík | Sími 561-3770