Ljósið

Viltu stjórna eigin hugsunum og læra að hugleiða PDF Prenta Rafpóstur

Námskeið í samvinnu við Lótushús

hugleidsla_2.jpg

 


Næsta námskeið auglýst síðar

 
 
 
 
 
 
 
 
 
Jákvæð hugsun:  
  „Þú ert það sem þú hugsar!"
Hugsanir mínar um eigið sjálf og aðra hafa bein áhrif á sambönd mín, bæði sambandið við sjálfan mig og aðra. Traust, kærleikur, virðing, skilningur og góð samskipti einkenna öll góð sambönd. Er ég minn eigin vinur og félagi?
 
Hugleiðsla: 
Viltu læra að iðka hugleiðslu?
Hugleiðsla hefur í gegnum aldirnar verið ein einfaldasta og áhrifaríkasta leiðin til að öðlast jákvæðara og kyrrara hugarástand.  Hugleiðslan hjálpar okkur að læra að ríkja yfir eigin huga, öðlast sanna sjálfsvirðingu og virkja þá góðu eiginleika sem innra með okkur búa.
 
Markmið námskeiðisins:
Markmið námskeiðisins  er að veita aukinn skilning á eðli hugsanana og kyrra hugann með hugleiðslu. Þú munt læra einfaldar aðferðir til að tileinka þér jákvæðara og uppbyggilegra viðhorf heima fyrir, í vinnunni og í samskiptum þínum við annað fólk.

 

 
 

Viltu styrkja Ljósið

Þú getur lagt inn frjáls framlög á styrktarreikning Ljóssins

reikn.no 0130-26-410420
kt: 590406-0740
Langholtsvegur 43 - 104 Reykjavík

Minningarkort

minning-kross.jpgNú er hægt að kaupa falleg minningarkort í Ljósinu.  Sigrún Lára Shanko, listakona og félagi í Ljósinu hannaði og málaði myndina sem er keltneskur kross.

Möndlu / Spírupokar

s_grni.jpg 

 

 

 

 

 

Erum með til sölu möndlupoka, einnig notað til að spíra í og til að sigta safa

Pokinn kostar 1000 kr

Smelltu á myndina til að fá uppskrift af grænum djús frá Sollu á Gló

Málverka hornið

flettur_2011.jpgLjósið er með til sölu málverk eftir tvo listamenn, þá Árna Rúnar og Garðar Jökulsson. Myndirnar hanga uppí Ljósinu til sýnis, einnig er hægt að skoða þær HÉR

2.jpg

Um Ljósið

Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein / blóðsjúkdóma og aðstandendur þeirra. Markmið Ljóssins er að efla lífsgæðin með því að styrkja andlegan, félagslegan og líkamlegan þrótt og draga þannig úr hliðarverkunum sem sjúkdómurinn getur haft í för með sér.
Lesa meira

Hreyfing styrkir Ljósið

Undanfarin ár hefur Ljósið
verið að efla líkamlega
endurhæfingu með því t.d. að vera í samvinnu við Hreyfingu,
Álfheimum.     Sjá nánar hér

hreyfing_logo.png

     

Viðtal

Útvarpviðtöl við Ernu og Matta Ósvald heilsuráðgjafa á Rás 1 og Rás 2  vegna fræðslufunda fyrir karlmenn í Ljósinu. Smelltu hér til að hlusta

Viltu lækka eldsneytisverðið?

orkan-lykill-litil.pngskeljungur-logo-litil.gif

 

 Við höfum nú gert samning við Skeljung þar sem þeir gefa ykkur 3 krónur í afslátt af hverjum lítra en Ljósið fær 2 krónur til að safna fyrir varanlegu húsnæði.  Lyklarnir eru hérna hjá okkur í Ljósinu svo endilega komið og sækið ykkur lykla.  Má einnig taka fyrir alla fjölskylduna og vini.  Því fleiri lyklar sem fara út, því meiri notkun og við söfnum fljótt og vel fyrir húsinu okkar og allir græða.

Ljósið er 5 ára þetta árið og því tilvalið að stuðla að framtíðaröryggi svo það komi til með að lifa a.m.k næstu 100 árin. Endilega sendið áfram á þá sem þið þekkið og vilja styrkja gott málefni. 

En ath það þarf að sækja lyklana hingað því þeir eru forritaðir fyrir Ljósið. Þeir eru ekki tengdir debet eða kreditkorti heldur notaðir áður en kortið er sett í.

Vertu með okkur á Facebook

Þú ert hér:Forsíða arrow Starfsemi arrow Námskeið / Hópar arrow Viltu stjórna eigin hugsunum og læra að hugleiða.
Ljósið | Langholtsvegi 43 | 104 Reykjavík | Sími 561-3770