| Þjónusta í boði |
|
|
|
|
Hvaða Þjónusta er í boði þegar þú greinist með krabbamein eða ert aðstandandi.
Það er mikið áfall fyrir alla fjölskylduna þegar fjölskyldumeðlimur greinist með krabbamein. Þá hefst ferli þar sem einstaklingurinn tekst á við breyttar aðstæður og meðferðir við sjúkdómnum hefjast annaðhvort á spítala eða hjá viðeigandi meðferðaraðila. Það er nauðsynlegt að huga bæði að andlegu og líkamlegu ástandi einstaklingsins og aðstandenda eftir greiningu, meðan á meðferð stendur og ekki síður eftir að henni lýkur því þá myndast oft tómarúm þegar spítalaferðum fækkar. Því fyrr sem stuðningurinn kemur inn því betur verður viðkomandi í stakk búinn til að takast á við breyttar aðstæður. Einstaklingar hafa um nokkra staði um að velja til að fá stuðning og endurhæfingu. Einhverjum kann að finnast erfitt að vita hvert hann á að snúa sér, hver veitir hvaða þjónustu og hver réttur þeirra er sem greinast. Við í Ljósinu viljum með þessari síðu koma með upplýsingar um þá þjónustu sem í boði er, sem mun vonandi gagnast öllum þeim sem þurfa á stuðningi að halda. Þeir staðir sem fólk leitar helst til er Landsspítali Háskólasjúkarhús, Ljósið endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð og Krabbameinsfélag Íslands. Þessir meðferðar- og stuðningsstofnanir vinna allar sjálfstætt en hafa samvinnu að því leyti að starfsmenn vekja athygli á því sem í boði er á hverjum stað fyrir sig. Auk þess eru sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfarar, sálfræðingar, geðlæknar, heilsufræðingar og fleiri sem fólk getur leitað til. Við bendum einnig á síðuna www.brjóstakrabbamein.is en þar er að finna góðar upplýsingar um ráð og stuðning.
|
Þú getur lagt inn frjáls framlög á styrktarreikning Ljóssins
Nú er hægt að kaupa falleg minningarkort í Ljósinu. Sigrún Lára Shanko, listakona og félagi í Ljósinu hannaði og málaði myndina sem er keltneskur kross.
Erum með til sölu möndlupoka, einnig notað til að spíra í og til að sigta safa
Pokinn kostar 1000 kr
Smelltu á myndina til að fá uppskrift af grænum djús frá Sollu á Gló
Bleik bjartsýni er bútasaumsteppi sem yfir 40 konur saumuðu og gáfu Ljósinu ásamt því gáfu þær kort með mynd af teppinu sem hægt er að kaupa í Ljósinu.
Kortið kostar 350 kr
Ljósið er með til sölu málverk eftir tvo listamenn, þá Árna Rúnar og Garðar Jökulsson. Myndirnar hanga uppí Ljósinu til sýnis, einnig er hægt að skoða þær HÉR

Undanfarin ár hefur Ljósið
verið að efla líkamlega
endurhæfingu með því t.d. að vera í samvinnu við Hreyfingu,
Álfheimum. Sjá nánar hér
![]()
Við höfum nú gert samning við Skeljung þar sem þeir gefa ykkur 3 krónur í afslátt af hverjum lítra en Ljósið fær 2 krónur til að safna fyrir varanlegu húsnæði. Lyklarnir eru hérna hjá okkur í Ljósinu svo endilega komið og sækið ykkur lykla. Má einnig taka fyrir alla fjölskylduna og vini. Því fleiri lyklar sem fara út, því meiri notkun og við söfnum fljótt og vel fyrir húsinu okkar og allir græða.
Ljósið er 5 ára þetta árið og því tilvalið að stuðla að framtíðaröryggi svo það komi til með að lifa a.m.k næstu 100 árin. Endilega sendið áfram á þá sem þið þekkið og vilja styrkja gott málefni.
En ath það þarf að sækja lyklana hingað því þeir eru forritaðir fyrir Ljósið. Þeir eru ekki tengdir debet eða kreditkorti heldur notaðir áður en kortið er sett í.
Þjónusta í boði